næs er systur staður SLIPPSINS og býður upp á næs mat, næs vín þar sem áhersla er lögð á náttúruvín og góða næs kokteila og bjóra! Við erum með breytt úrval af smáréttum í bland við stærri rétti. Frábært hráefni trítað með mikilli virðingu.

pælingin er að matseðillinn breytist ört og við viljum vera óhrædd að fara í ýmsar áttir en göngum þó alltaf útfrá að þetta eigi að vera næs. við mælum með að bóka borð þar sem staðurinn fyllist hratt.

*fyrir hópa þá erum við með hópseðillinn okkar neðst á síðunni.

við höfum nú lokað eftir sumarið, en munum vera með opið valdar helgar í vetur.

endilega fylgið okkur á instagram til að sjá hvenær við verðum með opið.


við opnum einnig fyrir hópa - sendið í forminu hér að neðan ef þú vilt fá tilboð fyrir hópinn þinn.

við mælum með að deila 2-3 smáréttum á mann eða 1 smærri & 1 stærri

matseðill

Vinsamlegast látið vita af fæðuofnæmi eða öðrum sérþörfum

*hægt að útfæra sem vegan

Share by: